Fréttir 2009
15. júní 17:10
Frá ritstjórn
Pósthúsinu í Flatey hefur verið lokað endanlega
Af tilviljun komst undirritaður um miðjan maíað því að til stæði að loka pósthúsinu í Flatey endanlega og það strax 1. júní2009. Greinlegt var að yfirmennÍslandspósts í Reykjavík höfðu farið með þessi áform sín eins og mannsmorð semengin mátti vita um. FramfarafélagFlateyjar skrifaði forstjóra Íslandspósts, Ingimundi Sigurpálssyni, strax 20.maí bréf þar sem farið var fram á frestun á þessari óheillavænlegu ákvörðunÍslandspóst fram á haustmánuði þannig að ráðrúm gæfist til að íhuga málið nánarog kynna það fyrir Flateyingum. Ljóst væri að lokunin myndi skerða póstþjónustu við ábúendur,húseigendur og þá fjölmörgu ferðamenn sem heimsækja Flatey. Pósthúsið í Flatey sem var og hefurverið kynnt í fjölmörgum ferðamannabæklingum sem "minnsta pósthús á Íslandi" hefur orðið eitt af sérkennumeyjarinnar og veigamikill hluti af menningasögu Flateyjar. Greinilegt var að þessi ákvörðun var þáþegar fastnegld niður enda var pósthúsinu lokað 1. júní s.l. Yfirmenn ogsvæðisstjórar Íslandspósts komu snarlega út í eyju til að ná í stimpla og aðrareignir Íslandspósts og í flýti var settur niður "póstkassi" á bryggjunni sem kæmi í stað pósthúss sem vafamál er aðstandist vetrarveðrin stríð í Flatey. 9. júní s.l. barst FFF svarbréf Íslandspóst undirritað frá ofangreindumforstjóra þar sem ákvörðunin var skýrð og rökstudd veigalitlum rökum. Ákvörðunin var endanleg og ekki aftursnúið. Fyrir hönd Flateyinga vilég, sem ritstjóri Símaskrár Flateyjar, færa Ólínu Jónsdóttir okkar bestukveðjur og þakklæti fyrir frábæra þjónustu í gegnum árin á pósthúsinu okkar íFlatey. Okkur er eftirsjá afþessu vinalega litla pósthúsi sem með sanni var "minnsta pósthús á Íslandi" og hafði sál.
15. júní 17:30
Frá ritstjórn
Vatnsveituframkvæmdir í Flatey 2008 - 2009
Vatnsveita Flateyjar þjónar nú öllum húsum íFlatey nema Sjávarslóð, Læknishúsi og Byggðarenda sem kusu að fá vatn úr sínumeigin brunnum. Nú í vor var lokiðvið að tengja húsin á háeyjunni; Krákuvör, Grænigarður, RARIK bústaður ogStjórnarráðs-bústaður við vatnsveituna. Lokið var við allan frágang á rörum og stútum við bryggju, í dæluhúsi íSkansmýrinni og í tengihúsi við Grænagarðsbrunn. Settir voru niðurundirstöðuhólkar fyrir þak yfir tankinn og í þá steypt og jarðvegur síðanjafnaður að tanki. Ennfremur vargengið frá öllum tengingum sunnan megin við tank. Áður en vatni var hleypt áTröllendatank í fyrsta sinn nú í sumarbyrjun var tankurinn hreinsaður vandlega,kústaður og þrifinn með klórblöndu. Jafnframt var klór-blönduðu vatni hleypt á kerfið sjálft tilsótthreinsunar að ráðleggingum Sóttvarna-eftirlits Vestfjarða. Grafnir voruniður og gengið frá tveimur stáltönkum vatnsveitunnar sunnan megin viðSkólahúsið en þeir verða varatankar fyrir vatns-miðlun og aukatankar fyrirbrunavarnir í Flatey. Það sem enn stendur eftir af framkvæmdum er að byggja þakyfir Tröllendatank sem gert verður á næstunni en timbur og efni er komið tillandsins til þeirra framkvæmda. Jafnframt er eftir að tengja þrjá brunahana við dælukerfið enReykhólahreppur leggur þá til sem sitt framlag til brunavarna í Flatey.
Með sanni má segja að þessarvatnsveituframkvæmdir hafa lyft Grettistaki í vatns-öflun til húsa í Flatey ogán efa hefði orðið alvarlegur vatnsskortur strax í júlímánuði í fyrra (2008)hefði Tröllendatank ekki notið við. Vert er að óska Flateyingum til hamingju með þessar framkvæmdir og þakkaöllum sem komu að þessum viðamiklu framkvæmdum og lögðu ómældasjálfboðaliðsvinnu að mörkum.
15. júní 17:50
Frá ritstjórn
Staða samgöngumála við Flatey 2009
Þrátt fyrir mikla eftirgangssemi,bréfaskriftir, fundarsetu og viðtöl við málsmetandi aðila í stjórnkerfisamgöngumála á Íslandi hefur Flateyingum enn ekki borist svar við hvernigsamgöngum við Flatey verður háttað til framtíðar. Eina vitneskjan er yfirlýsingsamgönguráðherra, Kristjáns Möller, að meðan ekki hefur verið lokið viðheilsársveg um sunnanverða Vestfirði verða ferjusamgöngur tryggðar yfirBreiðafjörð og "stefnt er að þvíað framlengja ríkissamning um áætlunarsiglingar Breiðafjarðar-ferjunnar Baldursfram í maí 2011" eins og ráðherra sagði á Alþingi um málið í marsmánuðis.l. Þetta þýðir í reynd að ferjansiglir tvisvar á dag á tímabilinu 10. júní til 20. ágúst og þá ánverktakagreiðslna frá Vegagerðinni til Sæferða en með 20% hærra fargjaldi tilfarþega og síðan með skerti þjónustu yfir haust/vetrar- og vormánuði eins ogsíðastliðið ár með skertum verktakagreiðslum frá Vegagerðinni eins og boðaðvar. Afar nauðsynlegt er að eyða þessari óvissu og að allir sem treysta áþessar mikilvægu samgöngur fái skýr svör frá yfirvöldum um hver verði framtíðsamgangna við Flatey og yfir Breiðafjörð í náinni framtíð.
15. júní 18:10
Frá ritstjórn
Lokið við stækkun og endurbætur á bryggjunni í Flatey
Ánægjulegt hefur verið að fylgjast meðendurbótum og stækkun á ferjubryggjunni í Flatey í vetur og vor. Öllum framkvæmdum er nú lokið undirfarsælli stjórn Guðlaugs Einarssonar bryggjusmiðs frá Sauðárkróki. Bryggjan var öll lagfærð og styrkt,skipt var um og reknir niður fjölmargir nýir bryggjustaurar úr Basralocusharðvið, bryggjan stækkuð til suðurs og vesturs samtals 18,3 m. þannig aðstórbætt aðstaða er nú fyrir ferjuna Baldur að leggjast að bryggju. Lengistviðlegukanturinn úr 22 m upp í 40,5 m. Stærstur hluti bryggjugólfsins var endurnýjaður með úrvalsvið fráAusturlöndum (Azobe harðviður), uppgöngustigar endurnýjaðir og lagfærðir ognýjum komið fyrir við norðvestur enda bryggjunnar. Steyptur hefur verið traustur og veglegur kantur ogbrimvarnargarður frá bryggjuenda og upp meðfram vesturhlið frystihússins. Jafnframt hefur verið steyptbryggjuplan við bryggjuenda þar sem hinn steypti kantur byrjar. Fagmannlega vargengið frá öllum tengingum, vatns- og olíulögnum í gegnum bryggjugólfið. Öll þessi framkvæmd hefur tekistafburðavel og eiga bryggjusmiðir heiður og þakklæti skilið af hálfuFlateyinga. Eflir þetta og styrkirán efa heilsárssamgöngur til mikilla muna og stórbætir aðstöðu báta í Flatey.
15. júní 18:25
Frá ritstjórn
Endurbætur á Flateyjarkirkju
Áfram hefur verið unnið að endurbótum ogviðgerðum á kirkjunni síðsumars 2008 og nú í vor. Búið er að skipta um og lagfæra glugga í kirkjuturni, geravið múrskemmdir og lagfæra steyptan þakkant kirkjunnar. Glæsileg og gullfalleg hurð er nú kominá Flateyjarkirkju en hún er gjöf Skáleyinga til kirkjunnar. Ber að þakka þessa höfðinglegu gjöf tilFlateyjarkirkju. Nú í sumarstendur til að ljúka við múrviðgerðir utandyra og mála kirkjuna ennfremurviðgerðir og málun á anddyri. Þegar þessum viðamiklu endurbótum sem 4jamilljóna króna fjárveiting af fjárlögum gerði kleift er lokið mun "kirkjan okkar" verða veglegt guðshús ogFlatey og Flateyingum til sóma og stolts.
15. júní 18:25
Frá ritstjórn
Uppbygging frystihússins í Flatey
Með sanni má segja að það hefur stungið í augumargra ferðamanna sem hafa fyrstu sýn af Flatey frá ferjunni við bryggju hiðhryggilega ástand frystihússins í Flatey. En nú er von um að fuglinn Fönix rísi úr öskustónni og verði fagurt hús á ný. Þrír aðilar í Flatey þau Jón ÞórSturluson í Byggðarenda, Gyða Steinsdóttir í Sunnuhvoli og KristínIngimarsdóttir á Sólbakka hafa sent hreppsnefnd Reykhólahrepps bréf dagsett 8.júní 2009 með hugmyndum um endurbyggingu frystihússins. Þau ráðgera aðendur-klæða húsið að utan, styrkja burðargrind og jafnvel byggja upp og styrkjaausturenda hússins sem er að falli komið. Reykhólahreppur lét á sínum tímaverkfræðistofu gera úttekt á ástandi hússins og sendi fjárveitingarnefndAlþingis í kjölfar hennar umsókn um styrk til niðurrifs eða uppbyggingarhússins. Af fjárlögum 2008 fengust 10 milljónir króna til þessa verkefnis oghefur menntamálaráðuneytið varðveitt þessa fjármuni hingað til. Um nokkurn tímahefur staðið styr um eignahald á húsinu en vitað var að Hafsteinn bóndiGuðmundsson keypti það á sínum tíma en fékk aldrei afsal einhverra hlutavegna. Nú er það mál leyst meðviðurkenningu Reykhólahrepps á þessum hlutum og er því ekkert til fyrirstöðu aðuppbygging frystihússins megi hefjast sem fyrst. Trúi ég að allir Flateyingar fagni þessum farsælu lyktun áþessu mikilvæga máli fyrir ásýnd Flateyjar sem og aðstöðu fyrir ábúendur ogfarþega Baldurs.
Okkur til gamans og upprifjunar um mikilvægifrystihússins í Flatey sem var hús stórra hugsjóna og drauma um endurreisnatvinnulífs í eyjunni læt ég fylgja Þorrablótsbrag sem settur var saman ítilefni af byggingu hússins 1949 - 1950
Byrjað varað bora og sprengja
og byggistGíslahlein.
Hamaðistþar hópur drengja
og harðanbrutu stein
En ekkisamt Ágúst Stein*
Verst varþað við vinnu þessa
að verjastkuldanum
Halir sátuá hitapoka
til aðhlýja bossanum.
*=Ágúst Steinn var oddviti Flateyjar í Eyjólfshúsi
15. júní 18:35
Frá ritstjórn
Flotbryggja fyrir smábáta í Flatey
Með fjárlögum 2008(Lendingarbótasjóður) fengust rúmlega tvær milljónir króna til að setja niður flotbryggju viðFlatey. Alþingi gerði enn beturmeð fjárlögum 2009 og veitti ellefu milljóna króna viðbótarframlag til þessaraframkvæmda og ber að lofa skilning og höfðingsskap Fjárlaganefndar Alþingis ígarð Flateyinga. Siglingarstofnunhefur nú lokið úttekt á staðsetningu slíkrar flotbryggju en í upphafi komu 5staðir til greina og telur hagkvæmasta kost fyrir slíka aðstöðu vera íInnstapolli við Hólsbúðarvog . Þaðer von manna að fljótlega geta framkvæmdir hafist en ljóst er aðviðbótarfjármagn þarf til fyrir svona miklar og stórhuga framkvæmdir enáætlaður heildarkostnaður gæti verið liðlega 35 milljónir króna. Ljóst er að flotbryggja þessi munistórbæta aðstöðu fyrir ört vaxandi bátaflota Flateyinga sem og samgöngur annarrabáta við Flatey.
15. júní 19:00
Frá ritstjórn
Vegaframkvæmdir í Flatey
Mörgum hefur jafnanrunnið til rifja hið ömurlega ástand eina vegarins sem er í Flatey. Hann hefur jafnan verið pollum þakinn ívætutíð, steinnibbur stungist í dekk farartækja og skósóla ferðamanna oggapandi holur í þurrkatíð. En núer ástandið annað. Að tilstuðlanReykhólahrepps fékkst 2,5 milljón króna framlag úr styrkvegasjóði (vegabótasjóður)til að endurbæta veginn og var Framfarafélagi Flateyjar falið að hafa forustu íþví efni en margir komu að þessu verki m.a. B.B & synir, Sæferðir, Magnús íKrákuvör, Heimir í Skólahúsinu, Þorgeir á Bjargi og eiga þeir allir þakkirskyldar. Rösklega var gengið tilverks, 360 tonn af vegaefni voru flutt með Baldri um miðjan júní og var Gullibryggjusmiður með sín öflugu tæki fenginn til að flytja níðþunga efnispokaeftir veginum endilöngum og faglega var dreift úr þessu sérvalda efni í vegFlateyinga. Eftir nægilega bleytunog hæfilega saltblöndun til bindingar á efninu og ef varlega er ekið um veginná næstu dögum má gera ráð fyrir að efnið þjappast vel niður og góður vegurverði staðreynd okkur til yndisauka og til hollrar gönguferðaiðkunar.
20. júní 20:10
Frá ritstjórn
Nýr brunnur í Flatey
Eins og fram kemurí umfjöllun hér að framan um vatnsveituframkvæmdir ákváðu þrjú hús í Flatey aðvera ekki með í Vatnsveitu Flateyjar. Til að fullnægja vatnsþörf þessara húsa (Sjávarslóð, Læknishús ogByggðarendi) og bæta stöðuga vatnsöflun var sótt um leyfi til skipulags-bygginga- og hafnarnefndar Reykhólahrepps "umleyfi til að byggja brunn í Flatey" Var erindið samþykkt 22. maí s.l. og vísað til hreppsnefndar tilendanlega afgreiðslu sem samþykkt var 18. júní s.l. Brunnur hefur nú verið grafinn austanmegin við frystihúsiðupp af Miðpolli skammt frá gamla frystihúsbrunninum sem nú hefur verið fyllturupp. Ráðgert er að steypa góðanbrunn á þessum stað sem fullnægja muni vatnsþörf þessara húsa. Megi brunnur þessi gefa nægilegt oggott vatn í framtíðinni.
20. júní 20:25
Frá ritstjórn
Almenningssalerni í Flatey
Eins og öllum erkunnugt hefur ferðamönnum fjölgað verulega hin undanfarin ár. Sérstaklega var þetta áberandi sumarið2008 þegar yfir 200 manns komu á góðum dögum út í Flatey milli ferða. Eðlilega kallaði þessi vaxandi fjöldi ferðamannaá betri aðbúnað hvað salerni áhrærir. Í sambandi við jarðvegsframkvæmdir og uppslátt fyrir brimvarnargarðivestan frystihússins var þar sett niður rotþró sem ætluð eru fyriralmenningssalerni sem staðsett eru vestanmegin við hvíta rafmagnsvélagámOrkuveitu Vestfjarða í sundinu norðan við frystihúsið. Nú hafa verið settir upp tvö salerni(blá að lit) á þessum stað og er það von forráðamanna Sæferða að leyst hafiverið farsællega úr frumþörfum ferðamanna til Flateyjar.
20. júní 20:25
Frá ritstjórn
Biskupsmessa í Flateyjarkirkju
Lok vísitasíuferðarbiskups, herra Karl Sigurbjörnsson um Vestfirði lauk með messu íFlateyjarkirkju sunnudaginn 14. júní. Fjölmenni var við messu og þjónaði settur prestur séra Elína HrundKristjánsdóttir fyrir altari. Söngflokkurog orgelleikari sem fylgt hafði biskup í þessa vísitasíuferð söng og lék viðmessu. Messa þessi var í allastaði afar hátíðleg og eftirminnileg og eftir var tekið að biskup lagði út frálistaverkum Baltasar í ræðu sinni sem var í senn áhrifamikil oguppfræðandi. Kallaði biskup öllbörn í kirkjunni upp að altarinu og talaði vingjarnlega og föðurlega til þeirraum mátt bænarinnar og trúna á Jesúm Krist. Biskup færði síðan börnunum gjafirtil minningar um þessa góðu heimsókn biskups til Flateyjar.
20. júní 20:50
Frá ritstjórn
Fyrirlestur um fugla í Flatey 19.júlí
Ævar Petersenfuglafræðingur og sérfræðingur um fugla í Flatey mun halda fyrirlestur íSamkomuhúsinu kl 15:00 sunnudaginn 19. júlí. Ævar mun þar fjalla um fugla í Flatey, ástand fuglastofna íeyjunni og á Breiðafirði og ennfremur nýjar fuglategundir í Flatey. Sérlega áhugaverður fyrirlestur semenginn Flateyingur eða fuglaáhugamaður má láta fram hjá sér fara.
20. júní 21:10
Frá ritstjórn
Staðsetning söfnunarkassa í Flatey
Í nokkur ár hefurfjáröflunarnefnd Flateyjarkirkju staðið fyrir söfnun einnota drykkjaríláta(dósir/flöskur/plast). Öllum ágóðaaf þessari söfnun hefur runnið beint til Flateyjarkirkju og greiðir ágóðinnfyrir rafmagn og upphitun kirkjunnar allt árið. Gárungar segja þar af leiðandi, að Flateyingar drekkikirkjunni til fjáröflunar og Guði til dýrðar. Á sínum tíma voru söfnunarkassar þessir færðir tilbráðbirgða frá norðurenda Samkomuhússins upp að græna símstöðvarskúrnum skammtfrá Sólbakka. Þar hafa þeir staðiðí tvö til þrjú ár og hafa ekki beinlínis verið augnayndi. Nú loks stendur til að færa þá áendanlegan stað eftir allnokkra íhugun og ábendingar. Staðurinn sem valinn hefur verið er við suðurenda Bátaskýlisins í lítilli hvilft þar semráðgert er að útbúa snyrtilega aðstöðu með palli fyrir þessa söfnunarkassa semverða endursmíðaðir og betrumbættir. Það er von fjáröflunarnefndar Flateyjarkirkju að þessi nýja staðsetningstuðli að betra og fallegra umhverfi en treystir jafnframt á að Flateyingarhaldi áfram að ganga með tóm drykkjarílát sín á þennan nýja stað kirkjunni tilfjáröflunar.
20. júní 21:25
Frá ritstjórn
Upplýsingamiðstöð um borð í Baldri
Athyglisverð nýjunghefur nú verið hrundið af stað af Sæferðamönnum um borð í Baldri. Opnuð hefur verið upplýsingamiðstöð í salnum beint að móti veitingarsalferjunnar og er áætlað að hún verði opin fram til 20. ágúst eða á meðan Baldurfer tvær ferðir á dag yfir Breiðafjörð. Starfsfólk miðstöðvarinnar munu veita alla almenna upplýsingaþjónustufyrir ferðamenn og farþega Baldurs. Seldar verða allar venjulegar ferðamannavörur s.s. póstkort, frímerki,landakort, ferðabækur og ýmsar smávörur. Jafnframt mun upplýsingamiðstöðin vera pósthús og þar með yfirtaka aðhluta til pósthúsþjónustu Pósthúss Flateyjar. Miðstöðin hefur fengið gamla Flateyjarpóst-stimpilinn tilumráða og þar verður póstur í Flatey móttekin og starfsfólk mun sjá um að komahonum í "póstkassann" á bryggjunni í Flatey. Rekstur Upplýsingarmið-stöðvarinnar er tilrauna- ogsamstarfsverkefni Sæferða, Breiðafjarðarfléttunnar og ferðaþjónustuaðila áVestfjörðum og Vesturlandi. Starfsmenn upplýsingarmið-stöðvarinnar í sumar eru Ásgeir Guðmundsson ogSveinbjörn I. Pálsson sem var leiðsögumaður í Flatey sumarið 2008. GSM símiupplýsingamiðstöðvarinnar er 856-0260 og sett verður upp netsamband fráupplýsingamiðstöðinni á næstunni.
20. júní 21:40
Frá ritstjórn
Vígslutónleikar á píanóFramfarafélagsins laugardaginn 18. júlí
Lokatónleikar ítónleikaröð Framfarafélags Flateyjar til styrktar píanósjóði félagsins verðahaldnir í Samkomuhúsinu laugardaginn 18. júlí kl 15:00. Aðalsöngvari verðurHrólfur Sæmundsson, óperusöngvari en með honum koma frá Pétur Heimisson ogaðrir þeir tónlistamenn úr Flatey sem lagt hafa styrktartónlekunum lið. Sem fyrr er Atli Heimir Sveinssonumsjónarmaður tónleikanna. Fullvíst má telja að Flateyingar og aðrir tónlistaáhugamenn munufjölmenna á tónleikana.
20. júní 22:00
Frá ritstjórn
Bátadagar Reykhólamanna 2009 11. og12. júlí
BátasafnBreiðafjarðar (sjá nánar uppfjöllun undir "Menningarhorn")mun efna til "Bátadaga Reykhólamanna"daganna 11. og 12. júlí n.k. Farið verður í siglingu frá höfninni á Stað áReykjanesi á laugardagsmorgni og komið við í eyjum á leiðinni til Flateyjar enþar verður gist um nóttina. Reykhólamenn vonast til að sem flestir súðbyrtir sjófærir trébátargamlir og nýir taki þátt í þessari skemmtilegu og áhuga-verðu siglingu. Núþegarer vitað að nokkrir bátar Flateyinga og Hvallátursmanna er verða með; Hringur, bátur Bjarna í Bergi, Bjargfýlingur, bátur Ólafs Gíslasonarog Þorgeirs Kristóferssonar í Bjargi. Einnig verða með í för bátarnir Björkog Ólafur úr Hvallátrum.
21. júní 17:20
Frá ritstjórn
Messa í Flateyjarkirkju 9. ágúst
Á hverju sumri erað jafnaði almenn messa einu sinni í Flateyjarkirkju. Samkvæmt upplýsingum frá sóknarpresti Flateyjar, sr ElínuHrund Kristjánsdóttir verður messa í kirkjunni sunnudaginn 9. ágúst. Flateyingar, húseigendur og aðrir eyjaskeggjareru hvattir til að fjölmenna til messu þennan sunnudag enda hátíðleg stund og hugarhvíldað meðtaka Guðsorð í Flateyjarkirkju.
21. júní 17:35
Frá ritstjórn
Fornleifaskráning og rannsóknastaðirí Hergilsey og Oddbjarnarskeri
Tveir sjóðir hafanú veitt styrki til fornleifaverkefna í Hergilsey og Oddbjarnarskeri. Þjóðhátíðarsjóður veitti 400 þúsundkróna styrk til Fornleifafélags Barðstrendinga og Dalamanna (forsvarsmenn eruBjörn Samúelsson og Uggi Ævarsson) til að skrá fornleifar í Oddbjarnarskeri ogflétta skráningu saman við eyjamenningu Breiðafjarðar. Hér er án efa um afar áhugavert ogþarft verkefni að ræða enda Oddbjarnarsker mikil útræðisstöð í Breiðafirði héráður fyrr. Nánar má lesa um þettaverkefni á vef Reykhóla (www.reykholar.is/frettir/Styrkur_til_forleifaskraningar_i_Oddbjarnarskeri)
Fornleifasjóðurhefur veitt 270 þúsund króna styrk til Óskars Leif Arnarssonarforn-leifafræðings til að kortleggja rannsóknastaði Snæbjarnar Kristjánssonar íHergilsey en Snæbjörn gróf og rannsakaði fornar minjar víða við norðanverðanBreiðafjörð undir lok 19. aldar og í byrjun 20. aldar. Áhugi Snæbjarnar sneri aðallega aðheiðnum gröfum og var hann m.a. fyrstur til að rannsaka kumlateiginn íBerufirði í Reykhólasveit, sem er einn stærsti heiðni grafreitur á Íslandi. Meðal annarra staða sem Snæbjörn gróf ámá nefna Hergilsey, Brjánslæk og Svínanes. Verkefni Óskars byggist á lokaritgerð hans í HáskólaÍslands. Lesa má nánar um þettaathyglisverða verkefni Óskars á vef Reykhóla (www.reykholar.is/frettir/Kortleggur_rannsoknastadi_Snaebjarnar_i_Hergilsey/)
21. júní 17:55
Frá ritstjórn
Fréttir af sveitarstjórnarmálumFlateyinga hjá Reykhólahreppi
Eins og ætíð beramargvísleg mál og málefni á góma hjá Reykhólahreppi er varðar Flatey ogFlateyinga. Vert er að getaörfárra mála er fram koma í fundargerðum hreppsins frá útgáfu síðustu símaskrárFlateyjar.
-
- Sótt um lóð í Flatey frá Flateyjarferðum til byggingar húsa til útleigu fyrir ferðamenn. Ekki talið rétt að verða við erindinu að svo stöddu þar sem vinna að aðalskipulagi Flateyjar stendur yfir.
- Kynnt bréf í skipulagsnefnd frá Breiðafjarðarnefnd til Gissurar Tryggvasonar og Ragnheiðar Axelsdóttir varðandi hugsanlega flugvallagerð í Svefneyjum
- Skipulagsnefnd Reykhólahrepps leggur til 17/11 '08 að aðalskipulag Reyk-hólahrepps (og þ.a.l. Flatey) samkvæmt tillögum Landmótunarverði samþykkt. Þrjár athugasemdir bárust. Á fundi hreppsnefndar 20/11 '08 var sveitarstjóra falið að senda Skipulagsstofnun samþykkt gögn (aðalskipulagið).
- Sótt um leyfi til að einangra og klæða að utan íbúðarhúsið Krákuvör í Flatey. Leyfisumsókn samþykkt.
- Ósk frá Siglingastofnun um framkvæmdaleyfi fyrir sjóvarnargarði í Flatey. Erindið samþykkt en leita skal samþykkis minjavarðar Vestfjarða.
- Tölvupóstur til hreppsnefndar frá Boga Jónssyni með hugmyndum um notkun gamla frystihússins í Flatey. Sveitarstjóra falið að svara erindinu.
- Bréf Minjaverndar með ósk um nýjan samning um Pakkhúsin í Flatey. Sveita-stjóra o.fl. falið að semja við Minjavernd fyrir 11. júní 2009.
- Beiðni frá Vatnsveitu Flateyjar um styrk vegna brunahana í Flatey. Samþykkt að styrkja verkefnið um 320.000.-
- Ósk frá Framfarafélags Flateyjar um leyfi til að setja upp upplýsingaskilti við Skansmýri í Flatey. Sveitarstjórn samþykkir erindið.
- Beiðni frá eigendum Læknishúss og Byggðarenda í Flatey með ósk um leyfi til að byggja brunn í Flatey. Erindið samþykkt með fyrirvara um samþykki bygginganefndar, minjavarðar Vestfjarða og Breiðafjarðarnefndar. Umráðaréttur brunnsins verði í höndum Reykhólahrepps. Sveitastjóra falið að gera samning við aðila.
- Tölvupóstur frá Framfarafélags Flateyjar varðandi vegabætur í Flatey. Samþykkt að verða við erindi Framfarafélagsins. Framkvæmdir fjármagnaðar með fé úr styrkvegasjóði.
- Tölvupóstur frá Sæferðum ehf með ósk um leyfi til að koma upp snyrtiaðstöðu í Flatey. Afgreiðslu frestað þar sem engin gögn höfðu borist fyrir fundinn. Eftir að afstöðumynd og teikningar höfðu borist var stöðuleyfi veitt til eins árs með fyrirvara um jákvæða afgreiðslu heilbrigðiseftirlits og Breiðafjarðar-nefndar.
- Tekið fyrir bréf frá Jóni Þór Sturlusyni (Byggðarenda), Gyðu Steinsdóttir (Sunnuhvoll) og Kristínar Ingimarsdóttir (Sólbakka) með hugmyndum um endurbyggingu frystihússins í Flatey. Sveitarstjórn falið að skoða framkomnar hugmyndir og óska eftir fundi með aðilum.
- Kynnt bréf frá Siglingastofnum um styrk til lendingabóta í smábátahöfn í Flatey.
- Ósk um stækkun lóðar við Alheim í Flatey. Ekki hægt að leyfa stækkun lóðar nema í tengslum við breytinga á gildandi deiliskipulagi. Erindinu synjað.
Eins og Flateyingumrekur vafalaust minni til var það ætlun sveitarstjórnar að heimsækja Flatey á síðastasumri og halda fund með ábúendum og húseigendum í Flatey. Því miður varð aldrei af þessari försveitarstjórnar út í Flatey. Þegarársfundur Framfarafélags Flateyjar var haldinn 13. nóvember s.l. stóð til aðsveitarstjóri Reykhólahrepp, Óskar Steingrímsson myndi mæta á fundinn. En á síðustu stundu forfallaðist hannvegna skyndifundar með sveitarstjórum Norðvestur kjördæmis á fjármálaráðstefnusveitarfélaga. Það má því meðsanni segja að það sé kominn tíma til að sveitarstjórn komi út í Flatey þettasumarið og haldi fund með Flateyingum. Hér með er skorað á sveitarstjórn að verða við þessum tilmælum
21. júní 18:30
Frá ritstjórn
Að efla tónlistar- og menningarlíf íFlatey
Tónlist hefur allatíð verið stór hluti af lífinu í Flatey enda ástsælir tónlistarmenn tengdirnánum böndum eyjunni. Nægir þar að nefna Sigvalda Kaldalóns sem var læknir íFlatey 1926 - 1929 og Atli Heimir Sveinsson sem fæddur er og uppalinn í Ásgarðiog eftir liggja mörg gullfallegustu lög okkar Íslendinga. Það er því frábært framtakFramfarafélags Flateyjar þegar stjórn þess ákvað að leggja sitt af mörkum tilað glæða tónlistar- og menningarlíf í Flatey með því að kaupa píanó sem komiðyrði fyrir í Samkomuhúsinu. Ísamvinnu við Atla Heimi Sveinsson hafa verið haldnir tveir stórkostlegirtónleikar til styrktar píanó sjóð Flateyjar, fyrst í Norræna húsinu 27. maí ogsíðan í Stykkishólmskirkju 28. maí s.l. Fram komu frábærir tónlistarmenn s.s. Hrólfur Sæmundsson, óperusöngvari,Lára Hrönn Pétursson, Pétur Heimisson og félagar í Kvintett Lýðveldisins,Emilía Rós Sigfúsdóttir og Sigurður Torfi Guðmundsson og fleiri. Flutt hafa verið lög eftir Atla HeimiSveinsson s.s. Hulduljóð,Festingin víða, Alsnjóa, Svolítil órækt og Snert hörpu mína og eftir SigvaldaKaldalóns s.s. Heimir, Betlikerlingin, Mamma ætlar að sofna, Kata í koti, Églít í anda liðna tíð og Á Sprengisandi. Lokatónleikarnir og vígslutónleikarpíanósins verða haldnir 18. júlí í Samkomuhúsinu í Flatey. Allir sem komið hafa að þessaritónleikaröð hafa gefið vinnu sína og til að kóróna þetta glæsilega framtak hafaafkomendur Sigvalda Kaldalóns fært píanósjóðnum rausnarlegt framlag tilminningar um Sigvalda Kaldalóns og dvöl hans í Flatey. Flateyingar og allir tónlistaunnendur íFlatey færa stjórn Framfarafélagsins, tónlistamönnunum öllum, Atla HeimiSveinssyni og afkomendum Sigvalda Kaldalóns sínar alúðlegustu þakklætisóskir ogán efa verður þetta sómafólk í huga fólks þegar píanóið ómar í Samkomuhúsinu íFlatey sem í reynd er "tónlistarhús"Flateyjar.
21. júní 19:00
Frá ritstjórn
Vetrarhátíð Flateyinga
Samvera Flateyingautan Flateyjar og utan sumarleyfistímans er jafn mikilvægt og flug farfugla tilfjarlægra landa að hausti. 28. febrúar í vetur bryddaði Framfarafélag Flateyjarupp á þeirri skemmtilegu nýjung í menningarlífi Flateyinga að halda VetrarhátíðFlateyjar. Hátíð þessi heppnaðistfrábærlega vel í alla staði enda vel að henni staðið á allan hátt undir röggsamristjórn Ásu H. Ragnarsdóttir í Vertshúsi og komust færri en vildu. Úr dagskrá hátíðarinnar má nefndafjörlegan söng Kvintett lýðveldisins, létta jazz sveiflu Sólkötlu Ólafsdóttir,kátan fjöldasöng, happdrætti og spurningakeppni, áhugaverður og skemmtilegurfyrirlestur leynisgestsins um skáldin í Flatey og lék Bræðrabandið undirdunandi dansi fram eftir nóttu. Veitingaþjónusta Mensu sá um frábært hlaðborð þannig að mestu mathákarFlateyjar höfðu ekki séð annað eins í langan tíma. Vetrarhátíðin er komin til að vera segja Flateyingar.
21. júní 19:50
Frá ritstjórn
Heimasíða Flateyjar og Flateyinga
Í all langan tímahefur staðið til, að Flateyingar og Framfarafélag Flateyjar opnaði og setti uppsína eigin heimasíðu. Allt fráársfundi félagsins í nóvember á síðasta ári hefur verið unnið markvist að þessumarkmiði. Töluverðan tíma tókfyrir félagið að eignast viðeigandi lén sem væri lýsandi fyrir Flatey. Það var ekki fyrr en Friðrik Brekkanleiðsögumaður er á ættir sínar að rekja til Flateyjar (móðurafi hans, JónSigurðsson er jarðaður í Flatey) færði félaginu lén það sem hann hafði eignastfyrir nokkrum árum www.flatey.com til eignar og afnota aðmálið fór að hreyfast fyrir alvöru. Um svipað leyti gengu formaður félagsins og ritstjóri Símskrár Flateyjará fund Einars Páls Svavarssonar kunnáttumanns um vefsíðugerð er rekurfyrirtækið Emstrur vefsíðugerð (www.emstrur.is) enEinar er jafnframt mikill áhugamaður um Flatey og kynntu honum hugmyndirfélagsins um heimasíðu um Flatey og flateysk málefni. Einar mun verða hinn tæknilegi ráðgjafi og hjálparkokkur íuppsetningu heimasíðunnar.
Skipuð hefur veriðritnefnd fyrir heimasíðu Flateyjar og hana skipa;
Auður Atlason,Ásgarði netfang; audunn@mfa.is skipaður afFramfarafélaginu
Hafdís Jónsdóttir,Myllustöðum, netfang; jadar6@simnet.is
Heiðrún EvaKonráðsdóttir, Vertshúsi austurendi, netfang; hek2@hi.is
Örn Sturluson,Vertshúsi austurendi, netfang; ornst@hive.is
Gunnar Sveinsson,Eyjólfshúsi, netfang; gunnarsv@landspitali.issem valist hefur til að vera ritstjóri heimasíðunnar.
Þegar líður ásumarið mun heimasíðunefndin taka til starfa og opnuð verður metnaðarfullheimasíða Flateyjar og Flateyinga. Hugsunin er að heimasíðan muni flytja reglulega fréttir af Flatey ogFlateyingum, kynntar verða öll þau félög sem starfandi eru fyrir Flateyinga,símaskrá Flateyjar fær pláss á síðunni, saga Flateyjar og húsin í Flatey fásína ríkulega umfjöllun, ljósmyndir og ljósmyndasöfn munu eiga sinn stað,skilvíslega verður greint frá því sem á döfinni er hverju sinni og leitastverður við að hafa síðuna gagnvirka þannig að lesendur gæti ætíð komið með sittálit á málefnum Flateyjar. Hér meðer skorað á alla Flateyinga að koma með skoðun sína á hvað birtast eigi á heimasíðuFlateyjar, hugmyndir um efnistök og umfjöllunarefni, senda ljósmyndir og efniog yfirleitt hvaðeina sem verði til þess að gera heimasíðu Flateyjar að lifandimálgagni Flateyjar. Vinsamlegastsnúið ykkur með hugmyndir ykkar og ábendingar til einhverra íheimasíðunefndinni og þar með leggið þið ykkar lóð á vogaskálar Flateyjar umheimasíðugerð.
21. júní 19:00
Frá ritstjórn
Höfðingleg gjöf til heimasíðuFlateyjar
Í tilefnivæntanlegra opnunar heimasíðu Flateyjar hefur Ólafur Steinþórsson sem á ættirsína að rekja til Bjarneyja en ólst upp í Flatey fært Framfarafélaginu ogheimasíðu Flateyjar stórfenglega gjöf. Ljósmyndasafn sem hefur að geyma tugi stór-kostlega ljósmynda fráBjarneyjum og Flatey þegar Ólafur var að alast upp í Flatey á fyrri hlutasíðustu aldar. Hin merkilega bókÓlafs "Ferð til fortíðar" er kom út1995 hefur að geyma margar þessara mynda en Ólafur hefur í gegnum árin komiðsér upp þessum ómetanlegu og merku heimildum um liðna tíð í Flatey. Hann hefur nú fært Flateyingum þetta safnsitt til varðveislu og birtingar á heimasíðu Flateyjar. Ólafi Steinþórssyni eru færðarhugheilar þakklætisóskir fyrir þessa höfðinglegu gjöf.
21. júní 19:20
Frá ritstjórn
Ljósmyndir úr Flatey
Sagt er að Flateysé Paradís ljósmyndarans og eru margar ljósmyndir vissulega teknar í Flatey áári hverju. Með sanni má segja aðþar sé fremstur meðal jafninga Guðmundur Páll Ólafsson í Vorsölum enda liggjaeftir hann fjölmargar stórglæsilegar bækur þar sem ljósmyndin spilar stórthlutverk. Ekki má gleyma myndabókumhans fyrir börn um lífríkið, fugla, fjörulífið o.m.fl. þar sem fjölmargarfallegar myndir úr Flatey prýða bækurnar. Margir Flateyingar hafa í gegnum tíðina tekið myndir af mannlífi íFlatey og má í því tilefni nefna Viktor Guðnason, stöðvarstjóra á Sólbakka, sonhans Ingólf Viktorsson, Önnu Björnsdóttirsem tók myndir af Flateyingum á fyrri hluta tuttugustu aldar, MagnúsBenjamínsson, Þorstein Jósefsson er heimsótti Flatey 1937, Sæmund Guðmundssoner ljósmyndaði hús í Flatey 1917, Óskar Gíslason er myndaði atvinnuhætti íFlatey 1960 og Gunnar Geir Vigfússon er tók loftmyndir af Flatey árið 1964. Aföðrum má nefna Hallbjörn S. Bergmann í Bentshúsi og Hörð Guðmundsson íEinarshúsi sem báðir eiga mikil og skemmtileg myndasöfn af Flateyjarmyndum. Af yngri ljósmyndurum okkar í hópiFlateyinga má nefna Rán Magnúsdóttir, Læknishúsi sem tekur glæsilegar myndir(sjá; www.flickr.com/photos/ranm/) og Ríkharður Ríkharðsson í Bræðraminni sem hefurtekið gullfallegar fuglamyndir í Flatey (sjá; http://rikkir.123.is/) Gaman væri að tilvonandi heimasíðaFlateyinga myndi prýða hluti af þessum myndasöfnum. Benda má á Flateyjarmyndir á eftirfarandi heimasíðum; www.hotelflatey.is,www.flatey.is, http://rikkir.123.is/, www.simnet.is/hergilsey,http://minningar.com/v/gudrun/klausturholar,www.flickr.com/photos/ranm/
21. júní 19:20
Frá ritstjórn
Velunnarar Flateyjar
Um nokkurn tímahafa ýmsir aðilar sem tengjast hafa Flatey nánum böndum með ýmsum hætti verið ápóstlista Flateyinga. Þeir hafafengið reglulega fréttir af því sem er á döfinni á hverjum tíma og haft bæðiánægju og gagn af að þeirra sögn. Nú hefur verið hrundið úr vör þeirri hugmynd að fjölga markvist í þessumhóp undir nafninu "Velunnarar Flateyjar". Í þessum hóp munu eiga heima þeir semreglulega heimsækja Flatey til dvalar um lengri eða skemmri tíma, gamlirFlateyingar sem ekki eiga hús í Flatey, aðilar sem láta sig málefni Flateyjarvarða og hafa lifandi áhuga á Flatey og Flateyingum og allir þeir sem ættirsínar eiga að rekja til Flateyjar og nálægra eyja (Svefneyjar, Hvallátur,Sviðnur og Skáleyjar). Semritstjóri Símaskrár Flateyjar vil ég því skora á alla Flateyinga og eyjaskeggjanálægra eyja að koma með ábendingar og uppástungur um þá sem eiga heima áþessum lista. Hægt er að komaábendingum til ritstjóra á netfangið; gunnarsv@landspitali.iseða í síma 824-5651. VelunnararFlateyjar munu fara á póstlista Flateyjar og reglulega fá allar fréttir ogtilkynningar sem Flateyingar hafa hingað til fengið. Vafalaust mun þetta vinda upp á sig þegar fram líða stundirog Velunnarar Flateyjar spila vaxandi hlutverk í málefnum Flateyjar.
21. júní 21:00
Frá ritstjórn
Bæjar- og húsakönnun í Flatey
Að tilstuðlanReykhólahrepps og Húsafriðunarnefndar var ráðist í það metnaðarfulla verkefniað gera úttekt á öllum húsum í Flatey. Fengin var til verksins Guðmundur L. Hafsteinsson, arkitekt og hefurhann skilað stórmerkilegri skýrslu til hreppsins og nefndarinnar er ber heitið "Bæjar- og húsakönnun í Flatey áBreiðafirði" Skýrslan hefurekki enn komið út en vonast er til að hún komi fyrir almenningssjónir ánæstunni enda mjög fróðleg með nákvæmri lýsingu og myndum af öllum húsum íFlatey þar sem saga þeirra er rakin ásamt nákvæmri úttekt á gerð ogbyggingarlagi húsa. Flateyingar munu án efa sækjast eftir að lesa og eiga þessaathyglisverðu skýrslu.
21. júní 21:15
Frá ritstjórn
Legstaðaskrá fyrirFlateyjarkirkjugarð
Þegar farið er inná vefinn www.gardur.is og slegið innFlateyjarkirkjugarður kemur upp "ósköpfátækleg" skrá um þá sem grafnir eru í garðinum. Samkvæmt þessari skrá eru 165 tilgreindir sem grafnir íFlateyjarkirkjugarði og af þeim eru fjölmargir með litlar sem engar upplýsingarum fæðinga- og dánardægur eða stöðu þess látna. Á þessum sama vef er þeim tilmælum beint til hlutaðeigandaað koma fram með upplýsingar til að gera þessa skrá sem ýtarlegasta ogtæmandi. Nú vil ég beina þeimtilmælum til Framfarafélagsins, Fjáröflunarnefndar kirkjunnar og/eða áhugasamaFlateyinga að huga að og taka upp þessa merkilega menningarverkefni fyrirFlatey.
Í þessu samhengivil ég geta um það virðingarverða framtak "Myllustaðabænda"sem hafa tekið kirkjugarðinn í Flatey "ífóstur". Þeir stóðu fyrirfjársöfnun innan sinna raða um kaup á glæsilegum sláttutraktor fyrir tveimurárum til að nota við slátt og snyrtingu leiða í kirkjugarðinum sem þeir hafasamviskusamlega séð um í mörg ár og nú hafa þeir tekið sig til að mála alltgrindverk umhverfis kirkjugarðinn og gefa alla málningu og vinnu við þettaverk. Þetta er fagurt fordæmi semFlateyingar þakka af alhug.
21. júní 21:30
Frá ritstjórn
Umhverfisverðlaun Framfarafélagsins
Í fjölmörg ár hefurFramfarafélag Flateyjar efnt til hreinsunardaga í Flatey um hvíta-sunnu til aðstanda vörð um náttúruperluna Flatey þar sem góð umgengni íbúa og gesta er ífyrirrúmi. En þrátt fyrir góðaviðleitni má með sanni segja að við höfum aðeins slakað á síðustu árin íumgengni okkar um næsta nágrenni og þörf er á átaki til að losa okkur við ýmiskonar rusl sem man sín fífil sinn fegri. Til að hnykkja ennfrekar á tiltekt okkar og umhyggju um okkar nánastaumhverfi hefur Framfarafélag Flateyjar ákveðið að veita sérstök umhverfisverðlaun þeimíbúum/húseigendum sem þykja hafa verið til fyrirmyndar í umgengni og virðinguvið umhverfi sitt. Þar kemur til margt til greina, allt frá frágangi húsa oglóða til almennrar útsjónasemi í þágu umhverfisins og vistvænnalifnaðarhátta. Sérstök dómnefndveitir verðlaunin. Meðumhverfisverðlaunum Framfarafélagsins vill félagið efla vitund félagsmanna ogFlateyinga fyrir bættri umgengni í Flatey. Verðlaunin verða síðan afhent á næstu vetrarhátíð félagsinsí febrúar/mars 2010.
21. júní 21:50
Frá ritstjórn
Glæsilegur leiðsögubæklingur umFlatey
Kominn er út stórglæsilegurbæklingur "Flatey áBreiðafirði-leiðsögukort" með leiðsögn um Flatey gefinn út af Sæferðum.Bæklingur þessi er frábær "leiðsögumaður"fyrir ferðamenn sem heimsækja Flatey. Hann er ríkulega skreyttur fallegum myndum Frank Bradford, KristinsMagnússonar og Heiðrúnar Evu Konráðsdóttur sem einnig sá um alla textagerð þarsem sagt er frá sögu Flateyjar, verslun og útgerð, eyjabúskapnum,Flateyjarkirkju, náttúru eyjarinnar, jarðfræði, gróðri og fuglalífi. Skilmerkilegt kort af Flatey auðveldarferðamönnum að ganga um og njóta náttúru Flateyjar. Kortið kostar kr. 300.- og er til sölu hjá afgreiðsluSæferða í Stykkishólmi, í Upplýsingamiðstöðinni um borð í Baldri og hjá HótelFlatey.
21. júní 22:00
Frá ritstjórn
Vaxandi fjöldi báta Flateyingakallar á leiðbeiningar og tilsögn
Staðreynd er aðbátafjöldi Flateyinga hefur vaxið stórlega undanfarin ár eins og listinn "Bátar í Flatey" ber glögglega með sér. Þessi staðreynd kallar á vangaveltur umtilsögn og leiðbeiningar til bátsstjórnenda um varahugaverðar sjóleiðir út frá Flateyþar sem sker og klettar, stríðir straumar og varhugaverð sund geta reynst bátumhættuleg. Fýsilegt væri að fá staðkunna aðila til að útbúa leiðbeiningarbæklingog/eða sjókort út frá Flatey sem lýsti þessum leiðum fyrir stjórnendumbáta. Af gefnu tilefni er einnigskorað á bátaeigendur að hafa öll tilskilin leyfi til bátaútgerðar í fullkomnulagi. Leyfi eins oghaffærnisskírteini báta, skipstjórnarréttindi fyrir stærri báta, matsskírteiniog skoðunarskírteini þurfa alltaf að vera í lagi og um borð í bát. Þessi leyfi þarf reglulega að endurnýjaog er á ábyrgð bátseigenda. Alltofoft hefur það komið fyrir að frágangur báta í bátalægi hefur verið ábótavantþannig að legið hefur við skaða og tjóni á bátum. Þeir aðilar sem umgangastbáta ættu að temja sér að ganga vel og fagmannalega frá bátum sérstaklega þegarallra veðra er von og munur á fljóði og fjöru getur skaðað báta. Til athugunar ætti að vera endurbætur ávörum, víkum og bátalægjum í Flatey þar sem komið yrði fyrir öruggumlandfestingum fyrir bátataugar ásamt belgjum þar sem því verður við komið. Héráður fyrr voru varir og víkur við Flatey reglulega hreinsaðar af steinum oggrjóti sem vetrarveðrin stríð báru að landi. Þessu hefur lítið verið sinnt á undanförnum árum fyrr en núí vor að hið öfluga tæki sem Gulli bryggjusmiður hafði til umræða var fengiðtil að hreinsa Nýjuvör og Vestur-búðarvörina. Þessu þarf að sinna mun betur. Mikil og vaxandi notkun bóla í Hafnarey kallar á sérstakaaðgæslu við frágang báta í Höfninni. Að mörgu er að hyggja þegar bátar eru annars vegar í Flatey. Skorað er á Framfarafélag Flateyjar áíhuga þessi mál nánar og/eða hið fyrirhugaða félag skipstjórnenda í Flatey semer í burðarliðnum.
21. júní 22:20
Frá ritstjórn
Varðveisla minja í Flatey -stýrishúsi af Konráði BA 152
Með sanni má segjaað flóabáturinn Konráð BA 152 hafi rofið einangrun afskekktra byggða viðBreiðafjörð og þjónað Flatey vel og dyggilega í hartnær 50 ár frá árinu 1927þegar hlutafélagið Norðri hf var stofnað í Flatey um rekstur flóabátsins.Reyndist Konráð BA alla tíð mikið happafley en heimahöfn hans var ætíðFlatey. Ferðatíðni ogviðkomustaðafjöldi Konráðs BA var ótrúlega mikill, en samkvæmt áætlun var hannþessi; Hagi, Siglunes, Brjánslækur, Auðshaugar, Fjörður, Illugastaðir, Gróunes,Hallsteinsnes, Þórisstaðir og Hofstaðir. Auk þessa fór báturinn fjölmargar ferðir til Stykkishólms, Reykjavíkurog víðar. Ótaldar eru ferðirKonráðs BA með fólk á skemmtanir og dansleiki að Bjarkarlundi og auðvitað íFlatey, berjaferðir upp í Vatnsfjörð eða Vattarfjörð og í Þorskafjörð í vegfyrir Dalarútuna.
Saga flóabátsinsKonráðs BA er mikil og happadrjúg og vert að halda á lofti þessum mikilvægaþætti í samgöngusögu Flateyjar. Núvill svo til að stýrishúsið af Konráði BA er enn til í Flatey og hefurHafsteinn bóndi Guðmundsson átt allan heiður að varð-veislu stýrishússins. Rétt þykir hér að reifa þeirristórmerkilegu hugmynd sem Ríkarður Ríkarðsson, Bræðraminni vakti máls á heimasíðusinni http://rikkir.123.is/ að gera stýrishúsið afKonráði BA 152 upp og staðsetja þar sem eftir er tekið og sómi er af fyrirFlateyinga og þá fjölmörgu ferðamenn er til Flateyjar koma. Sett yrði upp upplýsingaskjöldur umsögu Konráðs BA og þátt hans í samgöngusögu Flateyjar, siglingaleið skipsins,viðkomustaði og bæjarnöfn ásamt áhafnarmeðlimum.
Saga Konráðs BA hérað ofan er byggð á grein Ólafs Steinþórssonar er birtist í MBL 28. mars 2002 "Brot af sögu flóabátsins Konráðs BA-152"
21. júní 22:20
Frá ritstjórn
Bátasafn á Reykhólum
Stofnað hefur verið"Félag áhugamanna um stofnun bátasafnsBreiðafjarðar á Reykhólum" hinn 21. ágúst 2006. Forsaga þessa máls sú að fyrir hartnær áratug bauðAðalsteinn Aðalsteinsson bátasmiður frá Hvallátrum bátana Egil, Björg og Súluna til Stykkishólms með því skilyrðiað byggt yrði yfir þá. Eftir að fjármögnun tókst ekki á sínum tíma afþakkaðiStykkishólmsbær þessa myndarlegu gjöf Aðalsteins og mun bærinn afhenda bátanabátasafni á Reykhólum með því skilyrði að byggt verði yfir þá. Samningur hefur nú verið gerður millifélagsins og Reykhólahrepps um afnot af gamla Mjólkurbúinu við Maríutröð undirbátasafn og nú er verið að teikna hús sem mun hýsa það til framtíðar. Safninu á Reykhólum er ætlað fjölþætthlutverk. Þar verðursúðbyrðingurinn sjálfur í öndvegi, saga hans og þróun við Breiðafjörð, lag hansog haffærni. Smíði bátsins frákili að borðstokk yrði sýnd, járnsmíðin, seglasaumurinn og farviðurinn. Auk þessa yrði hægt að kynnastsiglingaleiðum um Breiðafjörð, fiskimiðum í fjöllum, heyflutningum, kirkjusókn,fiskigengd, byr og fleira tengdu sjósókn og siglingum. Vitanlega yrði eitt helsta verkefnisafnsins að geyma gamla báta og hafa þá til sýnis. Hér er tvímælalaustum mjög áhugavert og skemmtilegt safn að ræða sem Flateyingar og allt annaðáhugafólk um báta, sjósókn og fiskimið munu án efa kynna sér og heimsækja.
21. júní 22:20
Frá ritstjórn
Fuglarnir í Flatey
Fuglalífið í Flateyer afar fjölbreytt eins og Flateyingar þekkja manna best og víðþekkt er um heimallan og jafnvel svo að vafasamir eggjaræningjar hafa viljað koma út í Flateytil að stunda sína vafasama iðju. Blessunarlega tókst að afstýra þeirri ógn nú í vor með átaki Flateyingaog fuglaunnenda. Í tilefnifyrirlesturs Ævars Petersen um fugla í Flatey 18. júlí væri bæði fróðlegt ogskemmtilegt en um leið handhægt að taka saman á einn stað upplýsingar umfuglana í Flatey. Þessari hugmynd er hér með komið tiláhugasamra fuglaunnenda og smábókaútgefenda í Flatey.
Af þessu tilefni ogaf þekkingu manna á fuglum er hér smáviðbót. Eins og alkunna er eigaFlateyingar fjölmarga hagyrðinga innan sinna raða og er Einar Steinþórsson íBræðraminni þar fremstur meðal jafninga. Hér er lítil saga af tilurð einnarvísu hans. Frábær hjón og þekkt íStykkishólmi voru á göngu í Skógræktinni fyrir ofan Stykkishólm. Maðurinn hafði þá á orði við konu sína "heldurðu að það sé nú munur að vera hér ágöngu í skóginum og heyra indælan þrastasöng". Konan (hissa) svaraði að bragði, "þrastasöng, þetta er haninn hans Geira". Af þessu tilefni samdi Einar eftirfarandi vísu;
Skelegg við löbbuðum skógargöng,
mérer skylt að láta ykkur heyra.
Það sem ég nam sem þrastasöng
var þrekvaxni haninn hans Geira.



