Húsin í Flatey

• Alheimur
Reistur var torfbær 1838 þar sem Alheimur stendur í dag.  Árið 1922 byggði Bergþór Einarsson lítið timburhús er fékk nafnið Alheimur.  Bergþór ólst upp í Bjarneyjum en var síðar í Sviðnum og Hvallátrum og giftist Ingibjörgu Jónsdóttir í Flatey.

• Ásgarður
Byggt 1907 fyrir Guðmund Bergsteinsson kaupmann sem íbúðar- og verslunarhús.  Guðmundur tók við verslun tengdaföður síns Eyjólfs Einars Jóhannssonar 1900, keypti Gamlhús, þá 130 ára gamals hús og reif niður en byggði Ásgarð á grunni þess. Rak umfangsmikla verslun og útgerð í Flatey í fjölmörg ár.  Ásgarður var bæði íbúðar- og verslunarhús og Guðmundur og kona hans, Jónína Eyjólfsdóttir, versluðu þar um langt árabil eða frá árinu 1907 og fram yfir 1960. Gamla sölubúðin stendur enn meira og minna óbreytt í norðurenda hússins. Meðal afkomenda þeirra eru Jóhann Salberg, fyrrum sýslumaður á Sauðárkróki og víðar, Atli Heimir Sveinsson tónskáld og Guðmundur Benediktsson þulur Ríkisútvarpsins.
 
• Bátaskýlið
Byggt 1993 af Teinæringsvogsfélaginu sem er sameignarfélag fjölmargra bátaeigenda í Flatey og var Gestur Karl í Sólheimum meistari að húsinu.

• Bentshús
Byggt 1871 fyrir Bent Jónsson kaupmann. Bent var kaupmaður í Flatey en naut ekki lengi við því hann drukknaði í Breiðafirði á heimleið úr verslunarferð frá Danmörku 1873.

• Berg (Hafliðahús)
Byggt 1922 af Sigurbrandi Kristjáni Jónssyni sem var fæddur 1880 á Skarði í Nesjahrepp utan Ennis. Er í Skáleyjum og Hvallátrum en kom í Flatey 1911 með konu og tvö börn og var sjómaður og verkamaður alla ævi.

• Bjarg (Jóhannesarhús, Jakobshús, Bókasafnið)
Byggt af Jóhannesi Bjarnasyni skipstjóra árið 1897. Jóhannes fæddist í Bjarneyjum 1868 en var skipstjóri í Flatey til fjölda ára.  Fluttist til Reykjavíkur og byggði hús við Skólavörðustíginn og nefndi Bjarg. Húsið var endurbyggð frá grunni 2000.

• Bogabúð
Byggt af Boga Guðmundssyni kaupmanni árið 1908. Bogabúð er fyrsta steinhúsið í Flatey og byggt sem íbúðar- og verslunarhús og rak Bogi í húsinu verslun um langt árabil.  Sagan segir að þegar Bogabúð var byggt voru aðeins notuð tvö 10 tommu borð við uppslátt þess. Bogi var mikill hagleiksmaður og trésmiður er skar mikið út s.s. rúm-fjalir og kistla, smíðaði líkkistur og vann að smíði m.a. Hagakirkju á Barðaströnd.  Hægt er að sjá hagleiksverk hans  á byggðasafninu að Hnjóti.

• Bræðraminni
Byggt 1915 af sonum Kristjáns S. Jónssyni skipstjóra þeim Hermanni og Þorvarði.  Kristján var skipstjóri í Flatey, bjó lengi í Snikkaraskemmu en keypti síðar austurenda Félagshúss með Hermanni bróður sínum.

• Byggðarendi
Byggt 1950 af Jóhanni Kristjánssyni skipstjóra á flóabátnum Konráði BA. Jóhann ólst upp í Eyjólfshúsi hjá Stein Ágústi og Katrínu en móðir Jóhanns, Jóhanna var uppeldissystir Steins. Jóhann var lengi skipstjóri á flóabátnum Konráði eftir að Ágúst Pétursson hætti sem skipstjóri á flóabátnum. Jóhann er faðir Loga í Eyjólfshúsi. Um nokkurt árabil var barnaskóli í húsinu.
 
• Einarshús (Skrína)
Byggt 1905 af Einari Jónssyni sjómanni.  Einar var Snæfellingur að upplagi en var við vinnumennsku í Svefneyjum áður en hann flutti í Flatey og byggði sér hús við Hjallsvíkina sem nefnt var Einarshús. Einar var sjómaður alla tíð.

• Eyjaberg
Byggt 1994-6 af fjölmörgum Hergilseyingum sem margir hverjir eiga einnig í Vesturbúðum.  Meistari að húsinu var Sigurbjörn Guðjónsson.

• Eyjólfshús (Oddahús, Tangahús, Pálshús)
Byggt 1882 af Bárar-Ólafi Guðmundssyni og tengdasyni hans Eyjólfi Jóhannssyni kaupmanni sem íbúðar- og verslunarhús. Ólafur var löngum kenndur við bæinn Bár í Helgafellssveit en í Flatey bjó hann fyrst í Fjósakoti en síðar í Innstabæ en síðast í Eyjólfshúsi.  Hann var annálaður hákarlasjómaður og oft kallaður “tröllið með barns-andlitið”.  Bátur hans Gustur var þekkt aflafley. Tengdasonur Ólafs, Eyjólfur var kaupmaður og bóndi í Flatey en fæddur í Svefneyjum en hann var faðir Jónínu Eyjólfsdóttir sem var kona Guðmundar Bergsteinssonar í Ásgarði. Neðan við Eyjólfshús er Eyjólfsbryggja, áður aðal uppskipunarbryggja Flateyinga.                                                  

• Eyjólfspakkhús
Talið er að húsið hafi verið byggt 1888 – 1890 en það var byggt fyrir Eyjólf Jóhannsson kaupmann.
 
• Félagshúsið (Hermannshús, Benediktsenshús, Nýjahús)
Byggt 1843 af Guðmundi B. Scheving kaupmanni og útgerðarmanni.  Félagshúsið er elsta húsið í Flatey. Guðmundur var fæddur á Haga á Barðaströnd og gerðist sýslumaður Barðstrendinga 1806.  Jörundur hunda-dagakonungur gerði hann að amtmanni sínum yfir Norðuramtinu en Guðmundur leitaði skjóls í Flatey þegar Jörundur var handtekinn eftir að hafa ríkt skamma stund “á landinu bláa”.  Í Flatey gerðist Guðmundur umsvifamikill athafnamaður á sviði kaupmennsku og útgerðar og lyfti Grettistaki í athafnalífi Flateyjar á nítjándu öld.  Guðmundur lét byggja Silfurgarðinn og greiddi vinnulaun í silfurpeningum en verkinu var lokið 1833. Um langan tíma var rekin verslun í Félagshúsi og eru innréttingar hennar enn með óbreyttu lagi í húsinu. Húsið dregur nafn sitt af Verslunarfélagi Eyhreppinga sem var samvinnuverslun eyjabænda sem rak verslun á árunum 1873-1893 og verslunarstjórinn, Ólafur Skagfjörð bjó einnig í húsinu en hann var faðir athafnamannsins og heildsalans Kristjáns Ó. Skagfjörð.

• Grænigarður
Byggt 1950 af Ólafi Ólafssyni frá Hallsteinsnesi. Bygging hússins var í raun hluti af atvinnuátaki fyrir Flatey þegar Frystihúsið, Læknishúsið og Byggðarendi var byggður.

• Gunnlaugshús
Árið 1851 lét Brynjólfur Bogason Benediktssen stækka Félagshúsið til austurs og fékk það nafnið Gunnlaugshús þegar Gunnlaugur Sveinsson eignaðist húsið 1906 en hann var löngum talinn traustur og veðurglöggur skipstjóri.

• Klausturhólar (Prófastshúsið)
Byggt 1900 af séra Sigurði Jenssyni sem var prestur í Flatey 1880 – 1921. Sigurður var prestur Flateyinga í meir en fjörutíu ár en jafnframt prófastur Barðastrandarprófastdæmis og þingmaður Barðstrendinga 1886-1907.  Jafnan var Sigurður fyrirmaður í sveitarstjórn Flateyjar og Barðastrandasýslu.  Bókamaður var hann góður.

• Krákuvör
Byggt 1970 af Jóhannesi Gíslasyni Skáleyjum og þv. konu hans Svanhildi Jónsdóttir sem nú er bóndi í Flatey og býr í Krákuvör ásamt Magnús Arnar Jónssyni.

• Læknishúsið
Byggt 1950 af Gesti O. Gestssyni, Sólheimum.  Þrátt fyrir nafnið hefur aðeins einn læknir, Knútur Kristinsson, búið í húsinu frá 1956 til 1960.  Nú búa í Læknishúsi hjónin Ólína Jónsdóttir ættuð úr Hvallátrum og Hafsteinn Guðmundsson ættaður úr Skáleyjum.

• Myllustaðir
Byggt 2000 af Pétri Kúld Ingólfssyni húsasmíðameistara og fleiri laghentum eigendum Myllustaða.  Áður stóð á þessum sama stað torfhús þar sem Kristín Jónsdóttir og Einara móðir Árelíusar Nielssonar prests bjuggu síðustu æviár sín.

• Ráðagerði
Byggt 1976-1980 sem félags- og sumarbústaður fyrir starfsmenn stjórnarráðsins.

• RARIK
Byggt ca 1982 sem félags- og orlofsbústaður fyrir starfsmenn Rafmagnsveitu ríkisins (RAF starfsmannafélag).

 Samkomuhúsið (Nýjapakkahús, Loftskeytastöðin)
Byggt 1890 en húsið var byggt sem pakkhús og verslunarhús og hýsti lengi loftskeytastöðina sem rekin var fram til 1931 en síðar eignaðist Ungmennafélag Flateyjar húsið og var það félagsheimili Flateyinga í fjölmörg ár með  dansleikjahaldi, fundum og skemmtisamkomum eyjaskeggja.

• Sjávarslóð
Byggt 1994 af Hafþóri Hafsteinssyni sjómanni, syni Hafsteins bónda Guðmundssyni.

• Skólahúsið
Byggt 2003-2005 af hjónunum Þorsteini og Ingibjörgu og Heimi og Gróu á grunni skólahúss sem byggt var 1909 en rifið 1992.  Barnaskólinn eins og gamla húsið var jafnan kallað var steinhús teiknað af Guðjóni Samúelssyni er einnig teiknaði Flateyjarkirkju.

• Sólbakki (Stefánshús)
Byggt um 1890 af Stefáni Stefánssyni meðhjálpara og hét þá Stefánshús.  Stefán ólst upp í Hvallátrum eftir að faðir hann fórst með hákarlaskipinu Snarfara 1861.  Þaðan fluttist hann í Bjarneyjar og í Flatey og bjó á Myllustöðum.  Hann var formaður á bátum, kjötmatsmaður og meðhjálpari kirkjunnar, kallaður “djákni”.  Hann gaf Flateyjarkirkju hús sitt og aðra fjármuni eftir sinn dag. Viktor Guðnason nefndi húsið Sólbakki en í hans tíð var rekið pósthús og símstöð í Sólbakka. Nefna má að Viktor er afi Viktors Arnar Ingólfssonar, rithöfundar sem m.a skrifaði Flateyjargátu.

• Sólheimar
Byggt 1935 af Gesti O. Gestssyni en hann var skólastjóri 1933-1960 með hléum.  Húsasmiðameistari og yfirsmiður við Andakílsárvirkjun og skólahúss við Ljósafoss.  Gestur O. er afi Oddnýjar, Gest Karls og Ragnars í Sólheimum.

• Strýta (Jaðar)
Byggt 1915 af Magnúsi Jónssyni vélstjóra nálægt þeim stað sem Vegamót stendur en flutt út á eyjuna og sett á steyptan kjallara. Síðar var það flutt á bakkana og endurbyggt 1975. Magnús fæddist í Flatey en bjó fyrst í Vestur-búðum og í Beykishúsi og stundaði sjóróðra frá Bjarneyjum.  1907 kom fyrst mótorbátur til Flateyjar og valdist Magnús til að nema og vera vélamaður á Friðþjófi mótorbáti sem Guðmundur Bergsteinsson átti og gerði út.

• Sunnuhvoll
Byggt 2005 af Baldri Þorsteinssyni trésmíðameistara og konu hans Gyðu Steinsdóttir.  Húsið var byggt á grunni eldra húss sem reist var 1928 af Jóni Jónssyni snikkara en það hús var rifið 1970.

• Vegamót
Byggt 1922 af Bjarna Jónssyni bónda og verkamanni en hann var jafnan nefndur “Bjarni gaddur”.  Bjarni var frá Hálshúsum í Reykjarfjarðarhreppi en ólst upp á Selskerjum í Múlasveit en fór þaðan á Deildará í sömu sveit áður en hann kemur í Flatey 1901.  Bjó í Brekkubæ og síðar í Vegamótum.

• Vertshús (Veitingahús, Hótel Flatey)
Byggt 1886 af Magnúsi Magnússyni veitingarmanni sem veitingar-gisti- og íbúðarhús en veitingarsala var rekin í húsinu allt til ársins 1970. Magnús “vert” eins og hann var jafnan kallaður kom til Flateyjar 1876 og var trésmiður að mennt.  Þegar hann kvæntist Þorbjörgu Ólafsdóttir úr Sviðnum hóf hann veitingarekstur í Flatey sem hann rak til dauðadags 1933.

• Vesturbúðir
Vesturbúðir eru gamalt lögbýli og opinber lendingarstaður báta var í Vesturbúðarvör. Vesturbúðir voru uppruna-lega fiskverkunarhús og þá var staðurinn stundum nefndur “Paradís” enda vinnustaðstaðan til fiskverkunar innanhúss og á þeim árum þótt eins og að vera kominn í Paradís. Breytt úr fiskverkunarhúsi í íbúðarhús 1938 af Óskari Nielssyni þegar hann flutti úr Svefneyjum. Óskar var frá Bjarneyjum en bjó síðar í Bíldsey en varð bóndi og hreppstjóri í Svefneyjum.  Óskar gegndi ýmsum framastörfum í Flatey s.s. hreppstjóri, formaður kaupfélags Flateyjar, jarðarmatsmaður o.s.frv.  Hann setti síðar upp bú í Engey þegar hann flutti frá Flatey til Reykjavíkur 1945.

• Vinaminni
Byggt 1909 af Guðna Guðmundssyni.  Guðni fæddist á Grímsstöðum á Meðallandi, fór ungur til Seyðisfjarðar en fluttist síðar til Dýrafjarðar og stundaði verslun.  1909 flytur hann til Flateyjar og kaupir verslun þá er átt hafði Islansk Handels- og Fiskerikompanie en hann drukknaði 1910 við Hagasker á Barðaströnd með bát sínum Hörpu.  Magnús var faðir Viktors póst- og símstöðvarstjóra í Flatey.

• Vogur (Nýjahús, Jónshús, Jakobshús, Prestshús)
Byggt 1885 af Jóni Guðmundssyni kaupmanni.  Jón var fæddur á Mýrum í Dýrafirði en kom til Flateyjar 1870 sem verslunarfélagi Bents kaupmanns Jónssonar.  Húsið við Grýluvog hét í fyrstu Nýjahús síðan Jónshús, Vogshús og nú síðast Vogur en það var bústaður margra presta í Flatey s.s. sr. Sigurðar Haukdals, faðir Eggerts alþingismanns á Bergþórshvoli, fæddur í Flatey árið 1933.  Í fjöldamörg ár var rekið gisti- og veitingahús í Vogi á sumrin.  Húsið hefur mjög komið við sögu kvikmynda í Flatey t.d “Ungfrúin góða og Húsið” sem Guðrún Halldórsdóttir Laxness leikstýrði og “Brúðguminn” sem Baltasar Kormákur leikstýrði.

• Vorsalir (Sölubúðin, Kaupfélagið)
Byggt 1885 fyrir Jófríði konu Jóns Guðmundssonar kaupmanns sem lést 1888. Húsið var byggt sem verslunar- og vörugeymsluhús sem síðar varð Kaupfélag Flateyjar þar sem Sigfús Bergmann kaupfélagsstjóri réð ríkjum en Vorsalir var aðal verslunarhús Eyhreppinga frá upphafi og fram til 1965.  Núverandi eigandi hússins er Guðmundur Páll Ólafsson, náttúrufræðingur, rithöfundur og ljósmyndari en eftir hann liggja fjölmargar gullfallegar mynda-bækur um náttúru Íslands.

 

Flatey
Merki Framfarafélags Flateyjar
Flatey