Náttúra Flateyjar

Jarðfræði
Flatey er stærst Vestureyja. Eyjan er flatlend eins og nafnið gefur til kynna, en hæðarhryggur gengur efir henni endilangri og er Lundaberg hæsti hluti hennar, aðeins 16 m yfir sjávarmáli. Eyjan er um 2 km. að lengd og 400 metrar þar sem hún er breiðust en 20 metra þar sem hún er mjóst. Flatey myndaðist í eldgosi fyrir 11-12 milljónum ára. Flatey tilheyra um 40 eyjar og hólmar.
Gróður
Mikill gróður er í Flatey og þar hafa fundist tæplega 150 tegundir af blómaplöntum (gróður er viðkvæmur, gangið því aðeins á merktum göngustígum).    


Fuglar
Fuglalíf í Breiðafirðinum er mjög fjölbreytt og Flatey er engin undantekning frá því. Helsta ástæða fjölbreytninnar er næg fæða og miklar fjörur. Helmingur allra varpfugla á Íslandi verpir reglulega í Breiðafjarðareyjum eða um 35 tegundir. Helstu fuglategundirnar í Flatey og nærliggjandi eyjum eru: Æðarfugl, lundi, teista, rita, fýll, skarfur, tjaldur, kría, hrossagaukur, óðinshani, sandlóa og sólskríkja. Lundaberg er góður staður til að skoða sjófugla t.d. lunda, teistur, fýla og æðarfugla. 
Fuglinn hefur ávalt verið stór hluti hlunnindanna sem Breiðfirskir bændur hafa nýtt í aldanna rás. Æðarfuglinn er mjög verðmætur vegna dúnsins. Lundinn og skarfurinn eru nýttir til matar, en á undanförnum árum hefur stofn þessara tegunda minnkað og veiði að sama skapi.
Austari hlut eyjarinnar er friðaður. Það svæði er lokað allri umferð á varptíma, frá 15. apríl til 20 júlí.


  Texti úr leiðsögukorti um Flatey sem er til sölu á 300kr. hjá Sæferðum.

Flatey
Merki Framfarafélags Flateyjar
Flatey