Fæðuleysi hjá kríunni?

Margir íbúar í þorpinu hafa orðið varir við að kríann er að bera ýmsan óhefðbundin mat í ungann s.s. flugur og jafnvel brauð. Menn hafa brugðið á það ráð að gefa kríunni fisk og er hún ótrúlega lungin að finna út hvar er verið setja fiskinn.

Það er mikið líf og fjör þegar kríann sækir matinn á "garðann" og jafnvel hefur hún tekið matinn úr hendi gefanda. Myndin er tekin frá Skólahúsinu en einngi hefur sést til húsráðanda í Sólheimum, Bogabúð, hótelinu og Vesturbúðum vera að gefa kríunni. Vonandi dugir þetta til að hún komi ungum sínum á legg - ekki er hægt að ætlast til neinn fugl fljúgi svangur til Suðurpólsins.

Flatey
Merki Framfarafélags Flateyjar
Flatey