Framhaldsstofnfundur félags Flateyjarkirkju 22. ágúst

Ágætu Flateyingar,

 

Hérmeð er boðað til framhaldsstofnfundar félags Flateyjarkirkju sunnudaginn 22. ágúst kl 11:00 í kirkjunni.

 

Fundarefni er;

 

Skýrsla stjórnar

 

Kosningar

 

Önnur mál

 

 

Félagið var stofnað á fundi sem haldinn var í Flateyjarkirkju 26. júní s.l. sem nefnist "Söfnuður Flateyjarkirkju" og jafnframt var kosin bráðabirgðakirkjustjórn en í henni sitja

 

Guðrún Marta Ársælsdóttir - Byggðarenda, netfang; gunnarmarta@simnet.is

 

Gunnar Sveinsson - Eyjólfshúsi, netfang; gunnarsv@landspitali.is

 

Svanhildur Jónsdóttir - Krákuvör, netfang; sjflatey@simnet.is

 

 

í varastjórn sitja

 

Auðunn Atlason - Ásgarði, netfang; audunn@mfa.is

 

Dagbjört H. Höskuldsdóttir - Vinaminni, netfang; eydag@simnet.is

 

Helga María Jóhannsdóttir - Skáleyjum, netfang; helgamj@grundarfjordur.is

 

 

Félagið um Flateyjarkirkju er áhugamannafélag um kirkjuna þar sem eigendur húsa í Flatey, ábúendur, núverandi sóknarmeðlimir Flateyjarkirkju og aðrir velunnarar kirkjunnar munu taka höndum saman í öflugu félagi um velgengni og rekstur Flateyjarkirkju. Kosin yrði sérstök kirkjustjórn til að stýra málefnum Flateyjarkirkju.

 

 

Í þessari fámennu sókn sem einungis telur 10 sóknarmeðlimi teljum við með þessu myndi nást fram þau markmið að Flateyjarsókn verði áfram sjálfstæð sókn og hins vegar að eigendur húsa í Flatey, sem margir hverjir eiga djúpar rætur og ættir í Flatey og öðrum Breiðafjarðaeyjum, komi að stjórn og rekstri kirkjunnar sem þannig myndi styrkjast og eflast.

 

Samþykkt var á þessum sama fundi að halda framhaldsstofnfund eigi síðar en innan tveggja mánaða frá þeim fundi. Í millitíðinni yrði rætt við starfsfólk Biskupsstofu, biskup, sóknarprest og aðra er málið varðar til undirbúnings framhaldsstofnfundar. Samþykkt var ennfremur að þeir sem rita nafn sitt í sérstaka bók (bók er geymd hjá Svönu í Krákuvör) og/eða gefa til kynna t.d. með tölvupósti til einhvers í bráðabirgðakirkjustjórn Flateyjarkirkju muni teljast stofnfélagar í Söfnuði Flateyjarkirkju, áhugamannafélag um Flateyjarkirkju. Við hvetjum ykkur eindregið að gerast stofnfélagar og lýsa þannig yfir stuðningu við félagið og framgang og velferð Flateyjarkirkju.

 

 

Vonumst til að sjá ykkur sem flest í Flateyjarkirkju sunnudaginn 22. ágúst n.k. kl 11:00

 

 

Að gefnu tilefni viljum við ennfremur upplýsa að í tölvupósti til Flateyinga 15. júlí s.l. um "áríðandi upplýsingar til Flateyinga...." var talað um framhaldsstofnfund 14. ágúst n.k. Þegar þessi dagsetning var skoðuð nánar kom í ljós að boðað hafði verið til Eyjaþings 22. ágúst n.k. og var þ.a.l. talið best að hafa þessa tvö fundi á sama degi í Flatey.

 

 

Með bestu kveðjum

 

Kirkjustjórn Flateyjarkirkju
Flatey
Merki Framfarafélags Flateyjar
Flatey