Styttist í Eyjaþingið
Með þessum línum minnum við á Eyjaþingið í Flatey, sem haldið verður sunnudaginn 22. ágúst næstkomandi. Við finnum fyrir miklum áhuga og þörf og skráningar lofa góðu um þátttöku. Framfarafélag Flateyjar stendur fyrir þinginu, með stuðningi frá Breiðafjarðarnefnd, Minjavernd, Umhverfisráðuneytinu, Reykhólahreppi, Samgönguráðuneytinu, og fleiri velunnurum Framfarafélagsins. Umsjón með þinginu hefur Sigurborg Kr. Hannesdóttir hjá ILDI í samstarfi við Landmótun.
Til að taka þátt þarf ekki að halda ræður, heldur fer þingið fram með samræðu í litlum hópum. Hægt er að ræða bæði áhyggjur og framtíðardrauma og allt þar á milli. Þar má nefna náttúruvernd, ferðaþjónustu, skipulagsmál, samgöngur, mannlíf, vatn og fráveitur, öryggismál og stjórnsýslu.
Markmiðið er að draga fram það sem þátttakendur eru sammála um varðandi þróun í Flatey og nærliggjandi eyjum.
Þingið er vettvangur til að ræða mál, en þar er ekki verið að taka ákvarðanir, heldur verða niðurstöðurnar leiðbeinandi fyrir ákvarðanir og áframhaldandi mótun framtíðarstefnu um málefni Flateyjar og nærliggjandi eyja.
Til að þingið skili árangri, þarf að nást breið þátttaka, frá íbúum, húseigendum, samgönguaðilum og stofnunum og vill Framfarafélagið sérstaklega hvetja forráðamenn húsa að tryggja að öll hús sendi fulltrúa á þingið þannig að raddir sem flestra heyrist.
Við þurfum að vita um fjöldann með fyrirvara, vegna undirbúnings og því eru þeir sem ætla að mæta beðnir um að skrá sig hjá Ingveldi Eyþórsdóttur, ingae@holmarar.com, sími 847 1077 eigi síðar en 17.ágúst.
Praktísk mál
Þingið verður haldið á Hótel Flatey og stendur frá kl. 13 – 18 – athugið breytta tímasetningu.
Þátttakendum verður boðið upp á kaffi og meðlæti meðan á þinginu stendur, sér að kostnaðarlausu.
Fyrir þá sem áhuga hafa býður Hótel Flatey upp á súpu og kaffi í hádeginu á kr. 1.800.- en einnig geta þeir sem það vilja pantað af matseðli hótelsins.
Sæferðir bjóða þátttakendum Eyjaþings sérstakan afslátt, 2 fyrir 1 eða 50%. Gefa þarf upp nafn þegar en miði er keyptur þ.s. þátttakendalisti mun liggja í afgreiðslunni. Áætlun Baldurs og verðskrá er að finna á heimasíðu Sæferða www.saeferdir.is en þingið er skipulagt þannig að þeir sem ekki hafa tök á því að gista hafa góðan tíma til að taka ferjuna til baka um kvöldið.
Hreppsnefnd Reykhóla hefur boðað komu sína á þingið og mun bjóða uppá opna viðtalstíma í Saltkjallaranum laugardagseftirmiðdegi/kvöld fyrir þá sem vilja sér nýta sér það.
Við vonumst til að sjá þig!
Með bestu kveðju
Undirbúningsnefnd Eyjaþings



