Vetrarhátíð Framfarafélagsins
Vetrarhátíð Framfarafélags Flateyjar
laugardaginn 5. mars 2011
í Skarfinum, Skarfagörðum 8, 104 Rvk.
Húsið opnar klukkan 19:00 og borðhald hefst klukkan 20:00. Veislustjóri verður Margrét Gestsdóttir, sagnfræðingur og kennari af Sólheimakyni. Í boði verður glæsilegur sjávarréttamatseðill frá Guðmundi kokki í Laugaási af Vesturbúðakyni:
Forréttur
Reyklaxapaté með reyktum laxi
Humar-saltfisksalat
Laxa-carpaccio með engifer og lime
Hrefnu-sushi með wacamesalati
Ostasalat með nýbökuðu brauði
Bleykju-Maki með soya og washabi
Aðalréttur
Ofnbakaður lax með agave og sinnepi
Gljáðir sjávarréttir með koriander
Gratíneraður plokkfiskur með hverabrauði
Hrefnupiparsteik með beikoni og sveppum
Meðlæti
Kartöflusalat undir suðrænum áhrifum
Ferskt salat með sólþurrkuðum tómötum, fetaosti og ólífum
Sítruspiparsósa
Ofnbakaðar kartöflur
Nýbakað brauð
Kaffi og konfekt
Að borðhaldi loknu mun húsband Sólheima, einnig þekkt sem Leðurbjöllurnar (vísun í The Beatles), leika pottþétta danstónlist frá 6. og 7. áratugnum til klukkan 1:00 eftir miðnætti.
Miðaverð er einungis 6.000 kr sem greiða má inn á reikning Framfarafélagsins 309-26-001222, kt. 701190-1229. Kvittun fyrir greiðslu gildir sem aðgöngumiði. Vinsamlega skráið þátttöku sem fyrst hjá okkur á þetta netfang, hjallsvik@gmail.com með upplýsingum um nöfn þátttakenda og úr hvaða húsi þeir koma. Bregðist skjótt við því takmarkaður sætafjöldi er í boði.
Kær kveðja,
Sólheimagengið



