Vinnuferð Vatnsveitu Flateyjar
Ágætu Flateyingar,
Fyrirhuguð er vinnuferð Vatnsveitu Flateyjar um þar næstu helgi föstudaginn 10. september til sunnudagsins 12. september. Allar vinnufúsar hendur eru vel þegnar í þessa haustvinnuferð vatnsveitunnar en verkáætlun er eftirfarandi;
1. Hreinsa og háþrýstiþvo Grænagarðsbrunninn og Holuna.
2. Byggja yfir Grænagarðsbrunninn.
3. Lagfæra og ganga frá gamla, ónýta brunninum austan við núverandi Grænagarðsbrunn.
4. Grafa fyrir og setja upp brunahana í Götuskarðið og og við Vesturbúðir.
5. Fylla að jarðefni og þétta við undirstöður Tröllendatankarhúss
6. Ganga frá og setja jarðefni umhverfis stáltankana austan Skólahúss
Við í stjórn Vatnsveitu Flateyjar skorum á alla tiltæka, laghenta, duglega og vinnufúsa Flateyinga að taka þátt í þessari ágætu haustvinnuferð vatnsveitunnar sem ávallt er eintök upplyfting og skemmtun sem og uppörvun við að leggja sitt lóð á vogarskálar samfélagsþáttar samfélagsins í Flatey. Að hlúa að vatnsveitumálum í Flatey er vissulega áhugamál allra húseigenda í Flatey. Vinsamlegast látið mig vita um þátttöku í netfang; gunnarsv@landspitali.is eða í síma 824-5651 sem allra fyrst.
Með bestu Flateyjarkveðjum
Gunnar Sveinsson
Eyjólfshúsi, Flatey



